LÍFF3VE05

Verkefnalíffræði

Áfangalýsing:

Áfanginn tekur mið af heimildaöflun og rannsóknarvinnu á ýmis konar starfsemi sem tengist líffræði. Lögð er áhersla á að nemandi samþætti þá þekkingu og færni sem hann hefur tileinkað sér í LÍFF2LE05 og öðrum líffræðitengdum áföngum til að skoða og greina starfsemi á vettvangi og gera eigin rannsókn. Meginmarkmið áfangans er að brjóta niður veggi milli fyrri áfanga, rifja upp efni þeirra og setja í nýtt samhengi eða til að afla nýrrar þekkingar á vandaðan hátt. Lykilhugtök áfangans tengjast vísindalæsi og sjálfbærni, í einstaklings og hópvinnu með vandaðri heimildaskráningu. Nemendur skrifa skýrslu um rannsóknir  og kynna niðurstöður eigin rannsókna m.a. með veggspjaldi eða fyrirlestri á líffræðiráðstefnu í lok annar. Nemendur velja efnisþætti í samráði við kennara hverju sinni. Sjálfstæð vinnubrögð nemenda eru í fyrirrúmi með leiðsögn frá kennara.

 

Forkröfur: LÍFF2LE05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • vísindalegum vinnubrögðum.
  • mismunandi heimildum og mikilvægi ritrýndrar þekkingar.
  • sjálfbærni.
  • sérhæfðum orðaforða á íslenskri og enskri tungu á sviðum líffræðinnar.
  • sérhæfðri rannsóknarvinnu fræðigreinarinnar líffræði.
  • mismunandi aðferðum við kynningu rannsókna.
  • mikilvægi þess að birta niðurstöður rannsókna.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja vísindaleg vinnubrögð.
  • finna og nota viðurkenndar heimildir um líffræðileg efni.
  • meta sjálfbærni á ýmsum sérhæfðum sviðum líffræðinnar.
  • tjá skoðanir sínar viðfangsefnum á greinargóðan hátt, draga ályktanir og rökstyðja í fræðilegu samhengi.
  • greina líffræðilega þætti í starfsemi stofnana og fyrirtækja og að meta sjálfbærni þeirra.
  • safna upplýsingum af mismunandi fræðasviðum líffræðinnar og finna samsvörun milli þeirra.
  • skrifa skýrslur um margvíslega líffræðilega starfsemi.
  • skipuleggja rannsóknarverkefni.
  • framkvæma rannsókn samkvæmt skipulagi.
  • vinna úr niðurstöðum rannsóknar með myndritum og myndum.
  • setja fram og kynna rannsóknarniðurstöður.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita vísindalegum rannsóknaraðferðum í eigin rannsóknum.
  • auka skilning sinn á fjölbreytileika líffræðilegra viðfangsefna og hvernig þau tengjast.
  • stuðlað að sjálfbærni í margs konar verkefnum.
  • finna og nota viðurkenndar heimildir um líffræðileg efni til úrvinnslu eða miðlunar.
  • draga ályktanir af rannsóknarniðurstöðum og rökstyðja þau út frá mæligögnum og heimildum.
  • kynna sér rannsóknir sem aðrir hafa gert og nýta þær í eigin rannsóknarvinnu.
  • birta og kynna niðurstöður eigin rannsókna á fjölbreyttan hátt.l
  • lesa vísindagreinar til fróðleiks og sem hluta af framhaldsnámi í greininni.

 

 

Áfangakeðja í raungreinum