Valtímabil fyrir vorönn 2020 stendur yfir

23 okt 2019

Valtímabil fyrir vorönn 2020 stendur yfir

Nú stendur yfir valtímabil fyrir vorönn 2020 sem lýkur þann 30. október n.k. Með því að smella HÉR geturðu kynnt þér allt um valið en valið sjálft fer fram í gegnum INNU.

Allir nemendur í dagskóla sem ætla að halda áfram námi þurfa að velja áfanga fyrir næstu önn. Ekkert val þýðir engin stundatafla! Fjarnemendur sem ætla að halda áfram fjarnámi við skólann og borga fyrir fjarnámið geta líka valið áfanga.

Kynning á valinu verður í boði í fyrirlestrarsalnum, stofu 17, í upphafi fundartíma fimmtudaginn 24. október og í framhaldi verður boðið upp á aðstoð við valið. Nýnemar geta fengið aðstoð við valið í NÁSS1NN03 auk þess sem umsjónarkennarar geta aðstoðað. Allir nemendur geta auk þess fengið aðstoð við valið hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa. Hægt er að panta tíma hjá ritara.

Væntanleg útskriftarefni sem ætla að útskrifast í maí 2020 þurfa að panta tíma hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa til að fara yfir valið.

Dagskólanemendur sem ætla ekki að vera við nám á haustönn þurfa að láta áfangastjóra vita (heidrun@misa.is)

Til baka