Menntaskólinn á Ísafirði auglýsir lausa stöðu kennara í íslensku. Um er að ræða 75-100% starf.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttri kennslu í stað- og fjarnámi, er fær í samskiptum og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans.
Upplýsingar um starfið og umsóknaeyðublöð má finna á www.starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2025.
Nánari upplýsingar veita Heiðrún skólameistari á heidrun@misa.is og Dóróthea aðstoðarskólameistari á dorothea@misa.is.