4 nóv 2024
Á vorönn 2025 er stefnt að því að bjóða upp á tvær nýjar námsgreinar í lotubundnu dreifnámi. Um er að ræða húsasmíði annars vegar og múraraiðn hins vegar, hvoru tveggja með fyrirvara um næga þátttöku. Námið verður kennt í staðbundnum helgarlotum og fjarnámi þess á milli. Nemendur sem náð hafa 23 ára aldri og eru með 3 ára starfsreynslu í viðkomandi grein geta farið í raunfærnimat. Fyrir frekari upplýsingar má senda póst á fjarnam@misa.is eða hringja í síma 4504400.