4 jan 2013
Stafræna smiðjan sem nefnd er Fab-lab og staðsett er í Menntaskólanum á Ísafirðir er nú komin á góðan skrið. Smiðjan verður formlega opnuð í dag föstudaginn 4. janúar, klukkan 13. Dagskráin hefst með ávarpi Mennta- og menningarmálaráðherra á sal Menntaskólans og lýkur svo með formlegri opnun í smiðjunni sjálfri. Boðið verður upp á kaffiveitingar í mötuneyti skólans. Allir velkomnir!