4 mar 2020
Gróskudagar eru hluti af Sólrisuviku en þá er hefðbundinni kennslu skipt út
fyrir smiðjur af ýmsum toga, til dæmis fræðslugöngur um bæinn,
skapandi skrif, fréttaskrif, ýmis borðspil og víkingaskák,
borðtennismót, spurningakeppnir, eldamennsku og kleinugerð.
Skíðagöngusmiðja er ávallt vel sótt og eru þátttakendur
bæði byrjendur og lengra komnir. Smiðjunni stýrir Stella Hjaltadóttir náms- og starfsráðgjafi
skólans og skíðakennari.
Skíðagöngusmiðjan vekur alltaf mikla lukku meðal nemenda,
eins og sjá má á meðfylgjandi mynd frá skíðagöngu dagsins.