22 jún 2023
Í dag lauk Menntamálastofnun við að innrita nýnema í framhaldsskóla. Alls voru 57 nýnemar innritaðir í MÍ. Nýnemar skiptast eftir brautum þannig:
Félagsvísindabraut | 3 |
Grunnnám háriðngreina | 4 |
Grunnnám málm- og véltæknigreina | 13 |
Grunnnám rafiðngreina | 3 |
Lista- og nýsköpunarbraut | 6 |
Náttúruvísindabraut | 10 |
Opin stúdentsbraut | 18 |
Innritaðir nemendur eiga von á innritunarbréfi frá skólanum í pósti. Við bjóðum nýnema haustsins 2023 velkomna í MÍ og hlökkum til samstarfsins með þeim.