Kosið í nýja stjórn Nemendafélags MÍ

12 apr 2024

Kosið í nýja stjórn Nemendafélags MÍ

Guðríður Vala, Laufey Dís, Frosti, Jón Gunnar og Unnur Guðfinna. Á myndina vantar Agnesi Evu, Sverrir Bjarka og Sæunni Lív.
Guðríður Vala, Laufey Dís, Frosti, Jón Gunnar og Unnur Guðfinna. Á myndina vantar Agnesi Evu, Sverrir Bjarka og Sæunni Lív.
1 af 2

Í gær, fimmtudaginn 11. apríl, var haldinn aðalfundur Nemendafélags MÍ. Að loknum aðalfundi fluttu frambjóðendur til nýrrar stjórnar framboðsræður og í kjölfarið hófust kosningar í embætti. Kosningunum lauk kl. 11 í dag og í hádeginu voru niðurstöður þeirra kynntar með viðhöfn í gryfjunni. Nýja stjórn NMÍ skipa:

Unnur Guðfinna Daníelsdóttir - Formaður
Jón Gunnar Shiransson - Gjaldkeri 
Laufey Dís Þórarinsdóttir - Ritari
Sæunn Lív Christophsdóttir - Menningarviti
Guðríður Vala Atladóttir - Málfinnur
Agnes Eva Hjartardóttir - Formaður leikfélags
Frosti Gunnarsson - Formaður vídeóráðs
Sverri Bjarki Svavarsson - Fulltrúi verknámsnema

 

Nýjum fulltrúum í stjórn nemendafélagsins er óskað innilega til hamingju, sem og velfarnaðar í störfum sínum fyrir nemendur MÍ næsta vetur. 

Til baka