Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði verður haldin miðvikudaginn 15. janúar kl. 9.10 í fyrirlestrasal skólans, stofu 17.
Nokkrir nemendur MÍ taka þátt í ár, en þetta er í þriðja sinn sem nemendur MÍ taka þátt í keppninni.
Þátttaka er opin öllum framhaldsskólanemum landsins. Þeim keppendum sem standa sig best í landskeppninni verður boðið að taka þátt í verklegum æfingum í Háskóla Íslands á vorönn. Úr þeim hópi verður síðan valinn 4 manna hópur sem keppir fyrir Íslands hönd á ólympíuleikunum í líffræði í Japan næsta sumar.
Keppnin er á formi krossaprófs með 50 spurningum á ensku. Keppendur fá úthlutaðan ensk-íslenskan orðalista með prófinu. Prófið er samið samkvæmt áherslum ólympíuleikanna í líffræði og byggir á alþjóðlegu námsefni fyrir framhaldsskóla.
Keppnin fer fram samtímis um land allt. Við óskum nemendum MÍ góðs gengis í keppninni.