21 nóv 2017
Fimmtudaginn 23. nóvember verður lýðheilsudagur í Menntaskólanum á Ísafirði. Dagskráin hefst kl. 9 og lýkur kl. 13:00. Í haust hafa 18 nemendur verið í lýðheilsuáfanga hjá Kolbrúnu Fjólu Arnarsdóttur íþróttakennara þar sem unnið hefur verið að öllu því sem viðkemur viðburði eins og þessum.
Viðburðurinn er opinn öllum nemendum í MÍ og öllum 10. bekkingum í grunnskólum Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkur og Súðavíkur. Allir eru hvattir til að mæta með góðaskapið og undirbúningsnefndin lofar svakalegu fjöri. Greinar sem í boði verða eru; fótbolti, körfubolti, bandí, ringó, glíma, speedball, dodgeball, boðhlaup, Khoot, sjómaður og bekkpressa.
Skráning í greinar fer fram hér og finna má viðburð á Facebook.