19 ágú 2019
Mötuneyti skólans er opið frá og með 19. ágúst. Í mötuneytinu er í boði heitur matur ásamt veglegum salatbar. Einnig er í boði súpa, grautur eða skyr ásamt nýbökuðu brauði.
Verð fyrir matarmiða eða mataráskrift haustönn 2019 er sem hér segir:
- Annarkort kr. 65.000 - 81 máltíð á tímabilinu 19.08. - 13.12.
- Ekki er matur 26.09. 18.10. 21.10 og 06.11.
- Hægt er að skipta greiðslu í fjóra hluta
- Tíu máltíða kort kr. 8.500
- Stök máltíð kr. 1.000
Velkomin í mötuneytið og verði ykkur að góðu!