1 okt 2022
Nemendum og starfsfólki MÍ var á dögunum boðið á leiksýninguna Góðan daginn, faggi en sýningin sem sýnd var fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári er á leikferð um landið þessar vikurnar. MÍ-ingar fylltu Ediborgarhúsið og óhætt að segja að sýningin hafi verið bæði áhrifamikil og þörf.
Hér má lesa umfjöllun um sýninguna og einnig um leikferðina um landið.