19 ágú 2024
Í dag er nýnemadagur í MÍ og 71 nýnemi að hefja nám við skólann. Á nýnemadeginum eru allir nýjir nemendur boðnir velkomnir í MÍ en auk nýnema eru 15 nýjir eldri nemendur og 3 skiptinemar. Á nýnemadeginum er f arið yfir það helsta sem varðar skólastarfið, stjórn nemendafélagsins sér um hópefli og boðið er upp á hádegismat í mötuneytinu.
Við í MÍ tökum fagnandi á móti þessum stóra hóp og hlökkum til að kynnast þeim.