8 maí 2023
Já - það er hægt :)
Nú þegar önnin er að líða undir lok, var ákveðið að fara í smá tilraunastarfsemi í rafmagnsfræði.
Nemendur mættu með pylsur og meðlæti í tíma og ákváðu að prófa að stinga pylsunum í samband við innstungu og virkaði þetta bara nokkuð vel.
Nemendur voru ánægðir með árangurinn og gæddu sér á veitingum.