13 feb 2020
Ágætu nemendur og starfsfólk
Vegna slæmrar veðurspár fyrir föstudaginn 14. febrúar hefur verið ákveðið að loka skólahúsnæði Menntaskólans á Ísafirði. Staðbundin kennsla fellur niður en nemendur og starfsfólk sinna vinnu og námi í gegnum námsumsjónarkerfið Moodle. Kennarar verða í sambandi við nemendur í tölvupósti ef breytingar verða á fyrirkomulagi kennslu.
Fyrirhugaðri árshátíð nemenda sem halda átti annað kvöld er frestað um óákveðinn tíma.
Með góðri kveðju,
stjórnendur Menntaskólans á Ísafirði