Menntaskólinn á Ísafirði býður nemendur og starfsmenn velkomna til starfa á haustönn 2017. Upphaf haustannar er með eftirfarandi hætti:
Þriðjudagurinn 15. ágúst
Stundaskrár opnast í INNU. Námsgagnalisti nemenda er í INNU og á heimasíðu skólans, www.misa.is.
Skráningu í fjarnám lýkur.
Miðvikudagurinn 16. ágúst
Starfsdagur kennara
Fimmtudagurinn 17. ágúst
Starfsdagur kennara
Kl. 15:00-17:00
Töflubreytingar. Nemendur sækja sér númer hjá ritara. Athugið að nýnemar þurfa ekki að fara í töflubreytingar.
Föstudagurinn 18. ágúst
08:00-09:00
Nemendur geta nálgast stundatöflur og bókalista hjá ritara.
09:00
Skólasetning á sal skólans.
09:30
Í framhaldi af skólasetningu verður kennd svokölluð hraðstundatafla þar sem nemendur hitta kennara sína í hverju fagi í 10 mínútur.
11:30
Nýnemakynning í stofu 17 (fyrirlestrarsal) þegar hraðtöflunni lýkur.
13:00-15:00
Töflubreytingar.
Mánudagurinn 21. ágúst
Kennsla samkvæmt stundatöflu.
Þriðjudagurinn 22. ágúst
Fundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema í stofu 17 (fyrirlestrarsal) kl. 18:00. Kennarar nýnema verða á staðnum. Léttar veitingar í boði á eftir fyrir þá sem vilja.
Fimmtudagurinn 24. ágúst
Nýnemaferð að Núpi í Dýrafirði. Gist eina nótt og komið heim um hádegisbil föstudaginn 25. ágúst.
Fimmtudagurinn 31. ágúst
Kynningarfundur fyrir nemendur með lesblindu kl. 10:30 í stofu 17 (fyrirlestrarsal). Kynning á hljóðbókum og fleiru gagnlegu en nemendur sem hafa aðgang að, m.a. hjá Hljóðbókasafni Íslands (kennslubækur o.fl.).
Mánudagurinn 11. september
Síðasti dagur til að segja sig úr áfanga á haustönn 2017.
Þriðjudagurinn 12. september
Síðasti dagur til að skrá sig til útskriftar, á haust- og vorönn. Skráningin fer fram hjá ritara.