21 mar 2012
Í fundartíma 22. mars er umsjónartími. Nemendur fara þá til umsjónarkennara og velja áfanga fyrir haustönn. Mikilvægt er að velja áfanga sem allra fyrst og í síðasta lagi mánudaginn 26. mars. Eftir þann dag munuð þið aðeins geta valið áfanga hjá námsráðgjöfum eða áfangastjóra. Athugið vel að í suma áfanga kemst aðeins takmarkaður fjöldi nemenda þannig að mikilvægt er að velja þá sem fyrst. Ef þið dragið það að velja er alls ekki víst að þið komist í þá áfanga sem þið helst óskið. Hér fyrir neðan eru ýmsar upplýsingar sem eiga að auðvelda ykkur að velja þá áfanga sem þið þurfið.
Hér eru bóknáms- og íþróttaáfangar í boði og leiðbeiningar fyrir nemendur á 1. og 2. ári í bóknámi. Hér eru verknámsáfangar í boði.
Í haust verða ýmsir valáfangar í boði. Hér eru nánari lýsingar á nokkrum þeirra.
Leiðbeiningar vegna vals í INNU eru hér