21 des 2011
Menntaskólinn á Ísafirði óskar nemendum og starfsfólki gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Skólastarf hefst að nýju eftir jólaleyfi þann 4. janúar og eiga nemendur að mæta á sal kl. 9 þann dag. Stundatöflur verða aðgengilegar í Innu nokkru áður. Sett verður sérstök frétt á heimasíðuna til að tilkynna það, þegar þar að kemur. Bókalistinn er aðgengilegur á heimasíðunni. Skrifstofa skólans verður lokuð í jólaleyfinu og opnar aftur þann 4. janúar. Þeir sem eiga erindi við skólann geta sent tölvupóst á misa@misa.is