Tilkynningar

28 sep 2011

HAFRAGRAUTUR Í MÖTUNEYTI

Samkvæmt rannsóknum er morgunmaturinn ein mikilvægasta máltíð dagsins. Engu að síður sleppa margir því að fá sér morgunverð í upphafi dags. Mæti nemendur svangir í skólann getur það dregið verulega úr vellíðan og námsárangri. Afleiðingarnar lýsa sér í þreytu, slappleika, einbeitingarskorti og eirðarleysi. Menntaskólinn á Ísafirði er heilsueflandi framhaldsskóli og í vetur er áherslan lögð á næringu. Sú nýjung verður því í skólastarfinu frá og með föstudeginum 30. september að boðið verður upp á frían hafragraut í mötuneyti skólans kl. 7:50-9:10. Þetta verður gert til reynslu í nokkrar vikur og bundnar eru vonir við að framhald geti orðið á ef undirtektir verða góðar.
26 sep 2011

Útskrift jólin 2011

Þeir nemendur sem ætla að útskrifast um jólin þurfa að sækja um það á sérstökum eyðublöðum hjá ritara í þessari viku.

Frestur rennur út á miðnætti nk. föstudag 30. sept.

Áfangastjóri

22 sep 2011

KAPPRÓÐUR

Nemendur eru minntir á hinn árlega kappróður sem fer fram í dag frá kl. 10:05-12:30.
8 sep 2011

Cross-fit kynning

Kynning á þjálfunaraðferðum cross-fit íþróttarinnar mun fara fram á vegum afreksíþróttabrautar MÍ á föstudag og laugardag. Leifur Geir Hafsteinsson umboðsmaður cross-fit á Íslandi kemur til Ísafjarðar föstudaginn 16. september og verður með kynningu á Íþróttinni í íþróttahúsinu Torfnesi frá kl. 17:00 - 20:00. Leifur Geir var m.a. þjálfari Annie Mist sem er nýkrýnd sem heimsmeistari en nú hafa tveir erlendir þjálfarar tekið við þjálfuninni.  Ásamt Leifi koma þrír af cross -fit þjálfurum hans til að kenna og aðstoða þá sem velja taka þátt og kynna sér íþróttina, bæði með tilliti til þjálfunaraðferða sem gæti hentað öllum íþróttagreinum og einnig sem sjálfstæða keppnisgrein íþrótta. Nemendur á Afreksbraut Menntaskólans verða tilraunaiðkendur en húsið er opið fyrir alla sem áhuga hafa á að kynna sér íþróttina og fylgjast með.Kynningin verður bæði fræðileg í formi fyrirlesturs og verkleg þjálfun.

Á laugardag frá kl. 11:00 - 15:00 verður sett upp þjálfunarbraut utanhúss á gervigrasvellinum (ef veður leyfir) og inni í Vallarhúsi.   Ef veður hamlar verður farið aftur inn í íþróttahúsið.  Allt íþróttafólk ásamt þjálfurum innan HSV er hvatt til að mæta og kynna sér þjálfunaraðferðir cross- fit.  Þeir sem eru tilbúnir að prófa og taka þátt í þjálfuninni gefa sig fram á staðnum í upphafi tímans.  Í lok æfingarinnar á laugardag verður sérstök kynning fyrir þjálfara og umræða um það hvernig cross -fit gæti nýst við þrekþjálfun hinna ýmsu íþróttagreina.


F.h. Afreksbrautar MÍ,

Hermann Níelsson

Gsm. 8613248

 

8 sep 2011

Umsjónartími

Nemendur eiga að hitta umsjónarkennara sína í fundartíma í dag, kl. 10:25.