Síðastliðinn fimmtudag komu góðir gestir frá Rafmennt í heimsókn í skólann. Þau komu færandi hendi en allir nemendur á fyrsta ári í rafiðngreinum fengu afhenta spjaldtölvu ásamt spjaldtölvuhulstri. Samtök rafiðnaðarmanna hafa staðið að verkefni um afhendingu spjaldtölva til nýnema í rafiðnaði um nokkurt skeið og hafa rúmlega 3000 tölvur verið afhentar síðan verkefnið byrjaði. Á meðfylgjandi mynd má sjá þau Þór Pálsson, Báru Laxdal Halldórsdóttur og Ingvar Jónsson frá Rafmennt, ásamt hluta nemenda á fyrsta ári í rafiðngreinum og Sigurði Óskarssyni kennara. MÍ þakkar góða gjöf til upprennandi rafiðnaðarfólks í skólanum.
Fréttir
Á miðnætti þann 12. nóvember tóku gildi hertar sóttvarnarreglur sem meðal annars fela í sér almenna grímuskyldu og 50 manna samkomutakmarkanir. Heiðrún Tryggvadóttir áfangastjóri sendi nemendum póst s.l. föstudag þar sem reglurnar voru kynntar og áhrif þeirra á skólastarf í MÍ, sem eru sem betur fer ekki mjög mikil. Eftir sem áður er þó afar mikilvægt að allir séu vakandi varðandi sínar persónulegu sóttvarnir og fylgi þeim reglum sem í gildi eru.
Upplýsingarnar sem fram komu í póstinum má lesa hér: Hertar sóttvarnarreglur - skólastarfið framundan.
Og hér má lesa reglugerð heilbrigðisráðherra um skólastarf.
Í dag hefst valtímabil fyrir vorönn 2022 og stendur það yfir til 19. október. Nemendur sem ætla að vera áfram í námi í MÍ þurfa að velja sér áfanga. Hægt er að fá aðstoð hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa við valið. Hægt er að panta tíma hjá þeim á skrifstofu skólans eða með því að bóka tíma hér. Nemendur sem stefna á útskrift á vorönn þurfa að panta tíma hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa til að fara yfir valið.
Hér eru allar upplýsingar um hvernig valið fer fram eftir brautum.
Miðvikudaginn 6. október 2021 verður Forvarnardagurinn haldinn í grunn- og framhaldsskólum landsins. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og þá er sjónum sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Á Forvarnardaginn ræða nemendur um nýjustu niðurstöður rannsókna á þeirra aldurshóp og hugmyndir sínar um samveru, íþrótta- og tómstundastarf og því að leyfa heilanum að þroskast og hvaða áhrif þessir verndandi þættir hafa á líf þeirra. Þau vinna í hópavinnu og skrá hugmyndir sínar; síðan er svörum safnað saman til að finna samnefnara í umræðum þeirra. Þá gefst þeim kostur á að taka þátt í leik þar sem þau vinna með þá þætti sem dregið geta úr áhættuhegðun. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðar á árinu. Nánar má lesa um forvarnardaginn á heimasíðu verkefnisins forvarnardagur.is
Í dag fór fram nýnemakynning í MÍ. Þá hófu 56 nýnemar nám við MÍ. Á kynningunni var farið yfir það helsta í skólastarfinu, farið í skoðunarferð um skólann og endað á súpu í mötuneytinu. Við í MÍ hlökkum til að kynnast nýnemunum betur.
Nýnemarnir skiptast á eftirfarandi hátt á brautir:
Félagsvísindabraut 4
Grunnnám háriðngreina 3
Grunnnám málm- og véltæknigreina 7
Grunnnám rafiðna 2
Lista- og nýsköpunarbraut 8
Náttúruvísindabraut 10
Opin stúdentsbraut 16
Sjúkraliðabraut 3
Starfsbraut 3
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með miðvikudeginum 23. júní til miðvikudagsins 4. ágúst. Erindi sem ekki þola bið má senda á Jón Reyni Sigurvinsson skólameistara, jon@misa.is
Um síðustu helgi þreyttu nýútskrifaðir húsasmiðir sveinspróf í húsnæði MÍ. Sex nemendur luku sveinsprófinu. Á myndinni sem hér fylgir má sjá sveinsstykkið þeirra sem var vinnutrappa. Við óskum húsasmiðunum okkar innilega til hamingju með árangurinn.
Minningarsjóður Gyðu Maríasdóttur var stofnaður árið 1962 af nemendum Húsmæðraskólans Óskar á 50 ára afmæli skólans. Stærstur hluti sjóðsins er tilkominn frá Gyðu Maríasdóttur skólastjóra húsmæðraskólans en einnig frá systkinum hennar þeim Jóni, fyrrverandi útibússtjóra Landsbankans á Ísafirði og Hrefnu og Maríu en þau arfleiddu sjóðinn að miklum hluta eigna sinna. Nú er sjóður þessi orðinn digur og ætlunin er að veita úr honum umtalsverða upphæð í ár ef styrkhæfar umsóknir berast. Upphaflega var markmið sjóðsins að styrkja konur ættaðar frá Ísafirði og nágrenni til framhaldsnáms í húsmæðrafræðum. Síðar voru skilyrði sjóðsins rýmkuð vegna breytinga í íslensku samfélagi. Stjórn sjóðsins skipa: Útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði og fulltrúi frá Þóreyjarsystrum í Oddfellowstúkunni á Ísafirði.
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Styrktarsjóði Gyðu Maríasdóttur. Styrkurinn er ætlaður til stuðnings vestfirskum konum sem stunda sérhæft framhaldsnám á sviði lista eða menningar. Umsækjandi þarf að hafa náð átján ára aldri og hafa átt lögheimili á Vestfjörðum í a.m.k. tvö ár.
Umsóknir skulu berast til Jóns Reynis Sigurvinssonar skólameistara Menntaskólans á Ísafirði netfang: jon@misa.is. Umsóknarfrestur er til 30. júní 2021.
Stjórn Styrktarsjóðs Gyðu Maríasdóttur
Í lok maí bárust þær ánægjulegu fréttir að vottunarnefnd iCert ehf hefði að lokinni úttekt staðfest að Menntaskólinn á Ísafirði starfræki gæðastjórnunarkerfi í samræmi við kröfur sem settar eru fram í staðlinum ÍST EN ISO 9001:2015 og nær til reksturs framhaldsskóla á verknáms- og bóknámsbrautum. Staðfestingin fékkst að loknu löngu undirbúinings- og vinnuferli, en það var í lok árs 2017 sem markmið um innleiðingu gæðakerfis og vottun var sett í stefnuskjal skólans. Stjórnendur þakka gæðaráði og öllu starfsfólki skólans fyrir þennan góða árangur.
Í Menntaskólanum á Ísafirði er áfanginn Umhverfis- og átthagafræði (UMÁT) kenndur á hverju ári.
Hluti af UMÁT áfanganum á haustönn 2020 fjallaði um þjóðgarða og var ferlið við stofnun þjóðgarðsins á sunnanverðum Vestfjörðum skoðað.
Í tengslum við efnið var unnið að tillögum að nafni á nýja þjóðgarðinn. Nemendur í áfanganum voru 50 talsins. 19 tillögur að nafni bárust frá nemendum og var síðan kosið í þremur hlutum út frá tillögum nemenda. Í lokin var kosið um sex efstu tillögurnar sem voru.
Sigurtillaga UMÁT í MÍ var Vesturgarður með þeim rökstuðningi að það væri einfalt, lýsandi og grípandi.
Sigurtillagan var send fyrir hönd nemenda í samkeppni Umhverfisstofnunar um nafn á þjóðgarðinn, ásamt hinum fimm efstu tillögunum.
Samstarfshópur verkefnisins hjá Umhverfisstofnun hefur nú farið yfir tillögurnar og valið úr þeim fimm nöfn sem hópnum fannst koma best til greina og efnir nú til kosninga um nafnið. Er Vesturgarður ein af þeim tillögum sem nú er kosið um.
Tillögurnar sem hægt er að kjósa um nú á vef Umhverfisstofnunar eru eftirfarandi:
- Vesturgarður - einfalt nafn, lýsandi og grípandi.
- Þjóðgarðurinn Gláma - nafnið myndi halda á lofti nafni jökuls sem er horfinn ásamt því að vísa til Glámuhálendis
- Dynjandisþjóðgarður - vísar til fossins Dynjanda
- Arnargarður – vísar til stofns hafarna í þjóðgarðinum
- Vestfjarðaþjóðgarður
Við hvetjum alla til að kjósa um nafn á nýja þjóðgarðinn á sunnanverðum Vestfjörðum HÉR: Kosning um nafn á þjóðgarði