Páskaleyfi er hafið í Menntaskólanum á Ísafirði. Skrifstofa skólans opnar aftur kl. 8 miðvikudaginn 24. apríl og kennsla hefst sama dag samkvæmt stundaskrá. Gleðilega páska!
Fréttir
7. apríl hófst innritun annarra en 10. bekkinga í MÍ. Fjölbreytt námsframboð er í boði sem hægt er að kynna sér nánar á heimasíðu skólans. Margar námsleiðir eru í boði í dagskóla, allir bóknámsáfangar eru kenndir í fjarnámi og nokkrar námsleiðir eru kenndar í dreifnámi sem þýðir að það nám er hægt að stunda með vinnu.
Allar frekari upplýsingar um nám við skólann gefa Heiðrún Tryggvadóttir áfangastjóri og Stella Hjaltadóttir náms- og starfsráðgjafi.
Forinnritun 10. bekkinga hefur nú staðið yfir frá því 8. mars og lýkur henni 12. apríl. Lokainnritun er síðan 6. maí - 7. júní. Innritun annarra en 10. bekkinga lýkur 31. maí.
Hægt er að sækja um nám beint í skólann eða í gegnum Menntagátt.
Þessa viku og næstu munu 9 nemendur frá samstarfsskóla okkar í Danmörku, EUC Lillebælt, ásamt kennara og deildarstjóra vera við nám í skólanum. Hópurinn gistir á heimavistinni og vinnur hér að skólaverkefnum undir leiðsögn kennarans síns. Þetta er í fyrsta skipti sem við fáum heimsókn af þessu tagi og vonum við að þær eigi eftir að verða fleiri í framtíðinni.
Fyrir utan námið hefur hópurinn farið í heimsóknir í 3X og Vélsmiðjuna Þrist sem og skoðað gömlu vélsmiðjuna á Þingeyri. Danirnir halda heim á leið föstudaginn 12. apríl.
Þorsteinn Goði Einarsson nemandi á 1. ári í MÍ er núna staddur í mikilli ævintýraferð í Abu Dhabi þar sem hann tekur þátt í heimsleikum Special Olympics. Þorsteinn Goði keppir fyrir hönd íþróttafélagsins Ívars ásamt félaga sínum úr Bolungarvík Guðmundi Kristni Jónassyni. Þeir keppa í tvíliðaleik í badminton og þjálfari þeirra er Jónas L. Sigursteinsson er með þeim í Abu Dhabi. Keppni er hafin og hafa drengirnir mátt þola töp en einnig unnið sigra. Þeim er óskað innilega til hamingju með árangurinn. Öll ferðin er mikil upplifun og má fylgjast með ævintýrum þeirra í myndum á instagram síðunni: itr_ivar_abu_dhabi
Íslenski hópurinn á heimsleikunum hefur nú dvalið ytra í nær tvær vikur við undirbúning og keppni. Íþróttasamband fatlaðra er með fréttir af hópnum inn á sínum síðum: Snapchat (ifsport) og Instagram (npciceland) sem og á Facebook-síðu sambandsins.
Vilt þú vinna erlendis í sumar?
Nordjobb hjálpar þér að finna sumarstarf og húsnæði í öðru norrænu landi. Alls konar störf eru í boði svo sem í garðyrkju, þjónustu, fiskvinnslu, á hótelum og á veitingastöðum.
Allir eru hvattir til að sækja um, einu skilyrðin fyrir þátttöku eru að vera á aldrinum 18-30 ára og að hafa viðunandi vald á dönsku, sænsku eða norsku.
Þetta er tilvalið tækifæri til að eyða sumrinu erlendis, öðlast starfsreynslu og auka færni sína í erlendu tungumáli.
Áhugasamir geta fyllt út umsókn til að gerast Nordjobbarar á eftirfarandi slóð: https://semla.nordjobb.org/Registration.aspx?&lc=sv&cc=is
Hægt er að sjá laus störf hér: https://www.nordjobb.org/is/saekja-um-vinnu
ATH! Það kostar ekkert að taka þátt í Nordjobb verkefninu!
Nánari upplýsingar veitir Hannes, verkefnisstjóri Nordjobb á Íslandi, á island@nordjobb.org eða í síma 680-7477.
Sólrisuleikritið Ávaxtakarfan í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur var frumsýnt við mikinn fögnuð áhorfenda s.l. föstudag. Sýning er fjörug og skemmtileg og hæfileikar nemenda hvort sem er í leik, söng eða dansi njóta sín vel. Sýningin er unnin af mikilli fagmennsku, leikmynd, búningar og umgjörðin öll hin glæsilegasta. Það er augljóst að þetta unga fólk á framtíðina fyrir sér. Það er því sannarlega þess virði að skella sér í leikhús eina kvöldstund, eða eftirmiðdag.
Miðasala er í síma 450-5555
5.sýning - 6.mars klukkan 20:00
6.sýning - 8.mars klukkan 20:00
7.sýning - 9.mars klukkan 17:00
Sólrisuhátíð Nemendafélags MÍ stendur nú sem hæst, en hátíðin var sett s.l. föstudag. Sama kvöld var leikritið Ávaxtakarfan í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur frumsýnt við mikinn fögnuð áhorfenda.
Dagskrá Sólrisuhátíðarinnar er afar fjölbreytt í ár og áhugasamir geta kynnt sér hana á meðfylgjandi mynd. Sérstök athygli er vakin á Útvarpi MÍ-flugunni, en margir skemmtilegir og áhugaverðir þættir eru í boði.
Sólrisunefnd, menningarvita Kötlu Vigdísi Vernharðsdóttur og stjórn NMÍ er óskað innilega til hamingju með flotta Sólrisuhátið með ósk um að allir njóti hátíðarinnar og skemmti sér hið besta.
Gróskudagar verða í skólanum þriðjudaginn 5. og miðvikudaginn 6. mars n.k. Þá mun hefðbundin kennsla falla niður en nemendur velja sér smiðjur allt eftir áhuga hvers og eins. Nemendur þurfa að skrá sig í smiðjurnar fyrirfram og því mikilvægt að kynna sér vel dagskrána og lýsingu á smiðjunum.
Smellið hér til að sjá dagskrá gróskudaganna
Smellið hér til að sjá lýsingu á smiðjum
Meðfylgjandi er vefsíðan sem þið notið til að skrá ykkur og stutt kennslumyndband um hvernig hún virkar. Fyrstur kemur, fyrstur fær þannig að það er best að þið skráið ykkur sem fyrst
https://www.signupgenius.com/go/5080c4dacaf22a7fc1-grskudagar
Kennslumyndband
Vegna framkvæmda við suðurenda heimavistar verður mikið jarðrask á svæðinu þar í kring á næstunni. Efra bílastæðið verður því lokað frá og með 26.febrúar um óákveðinn tíma. Einnig getur verið að göngustígurinn ofan af Seljalandsvegi lokist tímabundið.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Því var fagnað á dögunum að búið væri að reisa þakgrind hússins sem nemendur á 2. ári í húsasmíði vinna að um þessar mundir. Húsið er unnið eftir teikningu Hallvarðar Aspelund hjá Tækniþjónustu Vestfjarða og undir styrkri stjórn kennaranna Þrastar Jóhannessonar og Bergsteins Gunnarssonar. Blásið var til reisugildis í verknámshúsi skólans og Fossavatnsgangan sem er þegar búin að festa kaup á húsinu, bauð nemendum og starfsfólki upp á veitingar í tilefni dagsins. Fossavatnsgangan hyggst nota húsið sem brautarskýli í Fossavatnsbrautinni en samskonar hús var reist af nemendum skólans fyrir tveimur árum síðan. Það hús var einnig keypt af Fossavatnsgöngunni og hefur þjónað tilgangi sínum vel. Á meðfylgjandi myndum má sjá hið reisulega hús sem og nemendur, kennara og gesti gæða sér á kræsingunum. Nemendum á 2. ári í húsasmíði og kennurum þeirra er óskað innilega til hamingju með vel unnið verk!