Fréttir
Á þriðjudag og miðvikudag fóru fram Gróskudagar hér í MÍ. Þá er hefðbundin kennsla brotin upp og boðið upp á ýmiss konar smiðjur í staðinn. Smiðjurnar voru af ýmsum toga og gátu nemendur alls valið sex smiðjur. Smiðjurnar voru: verkstæði MÍ nema, gönguferð um Ísafjörð, Café Lingua, spilagaldrar, borðspil, myndbandakeppni, boccia, jóga, ljósmyndamaraþon, kareoke, kynfræðsla, skíðaganga, víkingaskák, tónlistarsmiðja, fjölmiðlar, skapandi skrif, kvikmyndasmiðja, bokkakökur, ofurhetjur í myndum og teiknimyndasögum, spilavist, út að leika, umhverfissmiðja og fyrirlestur með Heiðari Loga m.a. um lífið með ADHD. Fleiri myndir má finna í albúmi hér á síðunni sem heitir Gróskudagar 2018.
Á fimmtudaginn kemur, 8. mars, fer fram háskólakynning í MÍ. Kynningin fer fram í Gryfjunni milli kl. 11 og 13. Að henni koma allir háskólar landsins auk þess sem Háskólasetur Vestfjarða og Keilir kynna námsframboð sitt. Allir eru velkomnir á kynninguna.
Í gær fóru verknámsnemendur í skólaheimsókn í EUC Lillebælt í Fredericia í Danmörku. Nemendurnir þrír eru Steinn Daníel Þrastarson nemandi í grunndeild málmiðna og vélstjórnarnemarnir Ágúst Orri Valsson og Emil Uni Elvarsson. Munu þeir dvelja í Fredericia í alls þrjár vikur þar sem þeir fara bæði í tíma í skólanum en fara einnig og finna í fyrirtækjum.
Menntaskólinn og EUC Lillebælt, sem er stór verknámsskóli, hafa átt í farsælum samskiptum frá árinu 2011. Á haustin hafa komið danskir nemendur til okkar og á vorin hafa okkar nemendur farið til Danmerkur.
Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði í samvinnu við Tónlistarskóla Ísafjarðar frumsýna á föstudaginn söngleikinn Konung ljónanna. Söngleikurinn er byggður á teiknimyndinni Lion King frá Disney og er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna, unga sem aldna. Leikstjóri sýningarinnar er Ingrid Jónsdóttir og hljómsveitarstjóri er Beata Joó. Sýnt er í Edinborgarhúsinu og fara miðapantanir fram í síma 450 5555.
Sýningar eru á eftirtöldum tímum:
Frumsýning 2. mars kl 20:00
2. sýning 3. mars kl 14:00
3. sýning 5. mars kl 20:00
4. sýning 6. mars kl 20:00
5. sýning 9. mars kl 20:00
6. sýning 10. mars kl 20:00
7. sýning 11. mars kl 16:00
8. sýning 11. mars kl 20:00
Verð:
12 ára og eldri: 3500kr.
6-11ára: 3000kr.
3-5ára: 1500kr.
NMÍ: 3000kr.
Öryrkjar og eldri borgarar: 3000kr.
Frítt fyrir börn yngri en 3 ára!
Sólrisunefnd hefur birt dagskrá Sólrisuvikunnar. Við hvetjum nemendur, forráðamenn og bæjarbúa alla til að taka þátt í viðburðum vikunnar.
Nú fer að líða að Gróskudögunum þar sem hefðbundin kennsla er brotin upp og boðið verður upp á smiðjur í staðinn. Til að komast í smiðjur verða nemendur að skrá sig í þær. Það er gert í gegnum þennan skráningarhlekk. Lýsingar á hverri smiðju má finna hér.
Fyrir þá nemendur sem eru ekki vissir um hvernig skráningin virkar er hér stutt kynningarmyndband
Varðandi mætingu þá fá nemendurmætingablað hjá ritara og fá síðan límmiða fyrir hverja smiðju sem mætt er í. Mæta þarf í þrjá stokka hvorn dag (athugið að sumar smiðjur eru lengri en einn stokkur).
Í morgun fengum við skemmtilegan fyrirlesara í heimsókn en þá kom Pálmar Ragnarsson og var með fyrirlestur á sal. Fyrirlestur Pálmars fjallaði um ýmislegt, m.a. markmið og samskipti. Þar kom hann m.a. inn á mikilvægi góðra samskipta í skólum og hvað hver og einn nemandi skiptir miklu máli. Góður rómur var gerður að fyrirlestri Pálmars eða svo vitnað sé beint í einn nemanda þá var fyrirlesturinn "ógeðslega skemmtilegur". Við þökkum Pálmari kærlega fyrir komuna.
Fimmtudaginn 15. og föstudaginn 16. febrúar er vetrarfrí í skólanum. Engin kennsla er þessa tvo daga. Skrifstofa skólans er lokuð báða vetrarfrísdagana.
Í dag, 6. febrúar, er alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Slagorð dagsins í ár er: Sköpum, tengjum og deilum virðingu: betra net byrjar hjá þér! Það er verkefni okkar allra að sameinast um að gera netið betra og við hvetjum nemendur til að hafa slagorð netöryggisdagsins í huga - alltaf þegar þeir eru á netinu.
SAFT, samfélag, fjölskylda og tækni heldur úti heimasíðu, www.saft.is, en á henni er að finna heilræði fyrir foreldra og leiðbeiningar um örugga netnotkun barna sem gott getur verið að kynna sér.