Fréttir
Fulltrúi Rannsókna og greiningar verður með kynningu í fyrirlestrarsal Menntaskólans á Ísafirði þriðjudaginn 12. september kl. 17:30. Kynningin nær yfir grunn- og framhaldsskólastig. Skýrsla R&G tekur á ýmsum þáttum s.s. vímuefnaneyslu, félagslegum þáttum, líðan, mataræði, svefntíma og hreyfingu.
Fimmtudagur 24. ágúst
- Mæting kl. 8:10
- Keyrt að Núpi
- Nemendur og kennarar koma sér fyrir á herbergjum
- Gönguferð að Arnarnesi
- Hádegisverður kl. 12:30, tiltekt í borðsal og eldhúsverk
- Frjáls tími
- Leiðsögn kl. 14:00 um svæðið í kringum Núp
- Kaffitími kl. 15:00
- Leikjastund kl. 16:00 – íþróttahús/grasvöllur
- Nemendur undirbúa kvöldvöku kl. 18:00
- Kvöldmatur kl. 19:00
- Kvöldvaka kl. 20:00, fulltrúar NMÍ koma í heimsókn og kynna félagslífið, nemendaskemmtiatriði og magnaðar draugasögur
- Svefntími kl. 23:30
Föstudagur 25. ágúst
- Farið á fætur í síðasta lagi kl. 9:00
- Morgunverður kl. 9:00 – 9:45
- Samvinnunám - ratleikur hefst kl. 10:00
- Frágangur kl. 11:30-12:00
- Brottför frá Núpi kl. 12:00 og hópmyndataka
* Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar
NAUÐSYNLEG MINNISATRIÐI:
- Skólareglur gilda í ferðinni, athugið að þetta er tölvulaus ferð
- Skólinn greiðir rútuferðir
- Nemendur greiða fyrir gistingu og fæði
- Innifalið í fæði er hádegisverður, miðdegiskaffi, kvöldverður og kvöldkaffi á fimmtudag og morgunmatur á föstudag
- Nemendur taka með sér orkuríkt nesti fyrir gönguferðina á fimmtudeginum
- Kostnaður er 7.500 kr, 2.500 kr. fyrir heimavistarbúa. Greiða þarf fyrir ferðina fyrir brottför.
- Nemendur eiga að hafa með sér kodda, svefnpoka/sæng og lak
- Gott að taka með ílát undir ber og vatnsflösku
- Nemendur verða að vera vel klæddir og koma með hlý föt og viðeigandi skófatnað.
Eftirtaldir starfsmenn fara með í ferðina:
Emil Ingi Emilsson, s. 659 9070
Guðjón Torfi Sigurðsson, s. 899 7237
Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir, s. 845 7242
Stella Hjaltadóttir, s. 846 6206
Nú er nýtt skólaár hafið en skólasetning fór fram á föstudaginn.Kennsla hefst mánudaginn 21. ágúst. Það var Hildur Halldórsdóttir skólameistari sem setti skólann í 48. sinn. Auk hennar flutti Heiðrún Tryggvadóttir aðstoðarskólameistari nokkur orð og hljómsveitin Between Mountains, sem skipuð er nýnemunum Ásrós Helgu Guðmundsdóttur og Kötlu Vigdísi Vernharðsdóttur, flutti eitt lag.
Menntaskólinn á Ísafirði býður nemendur og starfsmenn velkomna til starfa á haustönn 2017. Upphaf haustannar er með eftirfarandi hætti:
Dagskrá skólasetningardags er sem hér segir:
08:00-09:00
Nemendur geta nálgast stundatöflur og bókalista hjá ritara.
09:00
Skólasetning á sal skólans.
09:30
Í framhaldi af skólasetningu verður kennd svokölluð hraðstundatafla þar sem nemendur hitta kennara sína í hverju fagi í 10 mínútur.
11:30
Nýnemakynning í stofu 17 (fyrirlestrarsal) þegar hraðtöflunni lýkur.
Töflubreytingar fara fram fimmtudaginn 17. ágúst milli kl. 15:00-17:00.Nemendur sækja sér númer hjá ritara. Athugið að nýnemar þurfa ekki að fara í töflubreytingar.
Skólinn verður settur föstudaginn 18. ágúst kl. 9:00.
Skólameistari Jón Reynir Sigurvinsson jon@misa.is
Aðstoðarskólameistari Hildur Halldórsdóttir hildur@misa.is
Áfangastjóri Heiðrún Tryggvadóttir heidrun@misa.is
Fjármálastjóri Friðgerður Guðný Ómarsdóttir fridgerd@misa.is
Skólinn verður settur 18. ágúst kl. 9 en nánari upplýsingar um dagskrá fyrstu daga haustannar verða settar inn á heimasíðuna í byrjun ágúst.
Njótið sumarsins og sjáumst hress í ágúst!