Í dag heldur vaskur hópur MÍ-inga ásamt kennara sínum Ragnheiði Fossdal áleiðis til Mið-Ameríku ríkisins Hondúras. Þar mun hópurinn dvelja næstu tvær vikur við rannsóknir á lífríki lands og sjávar. Verkefnið er á vegum rannsóknarstofnunarinnar Opwall og hafa nemendurnir ásamt Ragnheiði undirbúið sig undir ferðina í allan vetur. Í áfanganum LÍFF3ÚT05 sóttu nemendurnir sér ítarlega þekkingu um Hondúras fyrr og nú. Bæði var fjallað um menningu og sögu ríkisins en áherslan þó fyrst og fremst á lífríkið og einnig á það starf sem bíður nemendanna við rannsóknir á því næstu tvær vikur. Það verður spennandi að sjá og heyra hvernig dvölin og vinnan í Hondúras mun ganga og en með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan komast lesendur á bloggsíðu verkefnisins þar sem fréttir verða settar inn eftir því sem tími og netsamband gefst. Héðan frá MÍ eru sendar óskir um góða ferð og góða og árangursríka dvöl í Hondúras.
Fréttir
Laugardaginn 25. maí voru 40 nemendur brautskráðir og tveir skiptinemar kvaddir, við brautskráningarathöfn í Ísafjarðarkirkju. Þrír nemendur luku A-réttindum vélstjórnar, 2 nemendur luku skipstjórnarréttindum A og tveir skipstjórnarréttindum B. Fjórir nemendur voru brautskráðir með framhaldsskólapróf af lista- og nýsköpunarbraut, þrír af sjúkraliðabraut, einn af starfsbraut og 26 stúdentar. Ellefu nemendur luku stúdentsprófi af félagsvísindabraut, einn af náttúrufræðabraut, átta af náttúruvísindabraut, fimm af opinni stúdentsbraut og einn lauk stúdentspróf af fagbraut. Að vanda sáu útskriftarnemar um tónslistarflutning á athöfninni. Þeir Gunnar Smári Rögnvaldsson, Pétur Ernir Svavarsson og Tryggvi Fjölinsson léku á blásturshljóðfæri ásamt kennara sínum Madis Maëkalle og Pétur Ernir söng einsöng við undirleik Halldórs Smárasonar sem fagnaði 10 ára stúdentsafmæli. Fulltrúar 10, 25, 30 og 40 ára afmælisárganga fluttu ávörp skemmtlegan og hátíðlegan svip á athöfnina. Við athöfnina voru fjölmargar viðurkenningar veittar fyrir góðan námsárangur. Hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi og þar með titilinn dúx scholae hlaut Pétur Ernir Svavarsson. Hann lauk námi af náttúruvísindabraut með meðaleinkunn 9,69 sem er hæsta meðaleinkunn á stúdentsprófi sem gefin hefur verið við skólann. Semi dúx var Ína Guðrún Gísladóttir en hún lauk prófi af náttúruvísindabraut með einkunnina 9,06. Eins og venja er þá flutti dúxinn ávarp og kom flestum viðstöddum á óvart með skemmtilegu tónlistaratriði með þátttöku fjölmagra tónlistarmanna og útskriftarnema. Við óskum öllum útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann og óskum þeim góðs gengis í framtíðinni.
Laugardaginn 25. maí verður 41 nemandi brautskráður frá skólanum. Níu nemendur ljúka námi af verk- og starfsnámsbrautum. Þrír með A réttindi vélstjórnar, tveir með A réttindi skipstjórnar og einn með B réttindi skipstjórnar. Þá brautskrást þrír sjúkraliðar frá skólanum. Fjórir nemendur ljúka námi á lista og nýsköpunarbraut, þar af er einn sem einnig lýkur stúdentsprófi af opinni stúdentsprófsbraut. Alls ljúka 29 nemendur námi af bóknámsbrautum skólans, einn lýkur stúdentsprófi af fagbraut og einn af starfsbraut. Sjö brautskrást af opinni stúdentsbraut, níu af náttúruvísindabraut og 11 af félagsvísindabraut. Útskriftarathöfnin verður í Ísafjarðarkirkju og hefst kl. 13. Allir eru velkomnir á athöfnina. en þeir sem ekki komast geta fylgst með henni í beinu streymi hér
Nú stendur yfir sýning á verkum nemenda sem unnin voru í áfanganum hugmyndir og nýsköpun, HUGN1HN05, á þessari önn. Í áfanganum kynntust nemendur hönnunarferli og nýsköpun. Byrjað var að vinna með hugmyndir, tengingu og fleira þar sem hugmyndir þróuðust. Að lokum var gert sýnishorn af væntanlegri framleiðslu. Verkin á sýningunni sýna hvernig hugmyndir nemenda fæddust, hvernig þær þróuðust og hver hugsamleg útkoma gæti orðið.
Sýningin er á göngunum á efri hæð bóknámshússins og stendur yfir dagana 13.-15. maí og er opin á skólatíma. Allir eru velkmnir.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna á stjornarradid.is/umsokn. Opið verður fyrir umsóknir til og með 13. maí nk.
Í haust hóf afreksíþróttasvið aftur starfsemi við MÍ eftir nokkurt hlé. 32 nemendur í 5 íþróttagreinum stunda nú nám á sviðinu og vonir standa til að í haust fjölgi bæði nemendum og greinum. Síðustu æfingarnar á afreksíþróttasviðinu standa nú yfir og í dag var tilvalið að færa blakæfinguna út sem gaf körfuboltakrökkunum tækifæri til að spila einn leik inni á meðan.
Frekari upplýsingar um nám á afreksíþróttasviðinu má finna hér.
Fimmtudaginn 2. maí verður boðið upp á fræðslu um kvíða í fundartímanum kl. 10:30-11:30. Fræðslan fer fram í Gryfjunni. Um fræðsluna sér Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur á Litlu kvíðameðferðarstöðinni. Áhugasamir nemendur eru hvattir til að mæta.
Nú stendur yfir góðgerðarvika í Menntaskólanum á Ísafirði og eru nemendur að safna fyrir börn í Jemen. Hægt er að leggja inn á reikning 0556-26-1036, kt. 460389-2119. Þegar ákveðinni upphæð hefur verið safnað munu ýmiss konar áheit verða að veruleika.
Páskaleyfi er hafið í Menntaskólanum á Ísafirði. Skrifstofa skólans opnar aftur kl. 8 miðvikudaginn 24. apríl og kennsla hefst sama dag samkvæmt stundaskrá. Gleðilega páska!
7. apríl hófst innritun annarra en 10. bekkinga í MÍ. Fjölbreytt námsframboð er í boði sem hægt er að kynna sér nánar á heimasíðu skólans. Margar námsleiðir eru í boði í dagskóla, allir bóknámsáfangar eru kenndir í fjarnámi og nokkrar námsleiðir eru kenndar í dreifnámi sem þýðir að það nám er hægt að stunda með vinnu.
Allar frekari upplýsingar um nám við skólann gefa Heiðrún Tryggvadóttir áfangastjóri og Stella Hjaltadóttir náms- og starfsráðgjafi.
Forinnritun 10. bekkinga hefur nú staðið yfir frá því 8. mars og lýkur henni 12. apríl. Lokainnritun er síðan 6. maí - 7. júní. Innritun annarra en 10. bekkinga lýkur 31. maí.
Hægt er að sækja um nám beint í skólann eða í gegnum Menntagátt.