12 jan 2015

Skráning í fjarnám (áður P-nám)

Frestur til að skrá sig í fjarnám í áföngum í MÍ rennur út þriðjudaginn 13. janúar. Nemendur þurfa að koma umsóknum til ritara fyrir kl. 16 þann dag, á skrifstofunni eða í tölvupósti.
2 jan 2015

Skólastarf í annarbyrjun

Skólastarf hefst að nýju eftir jólaleyfi, mánudaginn 5. janúar. Nemendur mæta á sal kl. 9 þann dag og að loknu ávarpi skólameistara fá þeir afhentar stundatöflur hjá umsjónarkennurum (nemendur yngri en 18 ára) eða ritara (eldri nemendur). Stundatöflur opna í INNU á  föstudaginn 2. janúar, hafi innritunar- og þjónustugjöld verið greidd. Töflubreytingar hefjast mánudaginn 5. Janúar, kl. 10.10, hjá námsráðgjöfum og aðstoðarskólameistara.
Með ósk um gleðilegt ár og árangursríka samvinnu á önninni.
12 des 2014

Myndir frá Vísindadögum

Myndir frá Vísindadögunum sem haldnir voru í skólanum dagana 4. – 5. desember eru komnar inn á síðuna. Hefðbundið skólastarf var þá brotið upp m.a. með kynningum nemenda á því fjölbreytta starfi sem farið hefur fram í skólanum á haustönninni.

Boðið var upp á stórskemmtilegar sálfræðitilraunir, verklegar æfingar í náttúrufræði og eðlisfræði, þátttöku í uppeldisfræðispili nemenda  ásamt ýmsum kynningum á verkefnum í félagsfræði, landafræði, erfðafræði og íslensku svo eitthvað sé nefnt. Nemendur í lífsleikni kynntu einnig áhugamál sín með mjög áhugaverðum hætti.

Þátttakendur gátu einnig gætt sér á ávöxtum og grænmeti á sérstöku hlaðborði, skoðað Læðuna í krók og kima, en þar er um að ræða rafbíl sem Orkubú Vestfjarða gaf skólanum á sínum tíma. Allir áttu þess einnig kost að leysa vísindaþraut en einn vinningshafi fékk veglegan vinning.  Þá var einnig veitt sérstök viðurkenning fyrir besta verkefni  vísindadaganna  og heppnir þátttakendur voru dregnir út í happdrætti. Nemendafélagið bauð nemendum upp á  kvikmyndakvöld á fimmtudeginum og  tölvuleikjastund á föstudegi eftir að hefðbundinni dagskrá lauk. 

Dagskránni lauk með verðlaunaafhendingu á föstudeginum. Starfsfólki skólans og nemendum bar saman um að vel hefði tekist til og að vísindadagarnir væru vonandi komnir til að vera sem hluti af skólastarfinu.

Allir íbúar skólasamfélagsins, nær og fjær, voru velkomnir í skólann á meðan á Vísindadögunum stóð.

12 des 2014

Myndir frá Vísindadögum

Myndir frá Vísindadögunum sem haldnir voru í skólanum dagana 4. – 5. desember eru komnar hér inn á síðuna. Hefðbundið skólastarf var þá brotið upp m.a. með kynningum nemenda á því fjölbreytta starfi sem farið hefur fram í skólanum á haustönninni.

Boðið var upp á stórskemmtilegar sálfræðitilraunir, verklegar æfingar í náttúrufræði og eðlisfræði, þátttöku í uppeldisfræðispili nemenda  ásamt ýmsum kynningum á verkefnum í félagsfræði, landafræði, erfðafræði og íslensku svo eitthvað sé nefnt. Nemendur í lífsleikni kynntu einnig áhugamál sín með mjög áhugaverðum hætti. 

Þátttakendur gátu einnig gætt sér á ávöxtum og grænmeti á sérstöku hlaðborði, skoðað Læðuna í krók og kima, en þar er um að ræða rafbíl sem Orkubú Vestfjarða gaf skólanum á sínum tíma. Allir áttu þess einnig kost að leysa vísindaþraut en einn vinningshafi fékk veglegan vinning.  Þá var einnig veitt sérstök viðurkenning fyrir besta verkefni  vísindadaganna  og heppnir þátttakendur voru dregnir út í happdrætti. Nemendafélagið bauð nemendum upp á  kvikmyndakvöld á fimmtudeginum og  tölvuleikjastund á föstudegi eftir að hefðbundinni dagskrá lauk. 

Dagskránni lauk með verðlaunaafhendingu á föstudeginum. Starfsfólki skólans og nemendum bar saman um að vel hefði tekist til og að vísindadagarnir væru vonandi komnir til að vera sem hluti af skólastarfinu.

Allir íbúar skólasamfélagsins, nær og fjær, voru velkomnir í skólann á meðan á Vísindadögunum stóð.

10 des 2014

ATH! Próf samkvæmt dagskrá í dag

Nemendur athugið að próf verða haldin í dag á eftirtöldum tímum:

Kl. 8.30 - FJA1036
Kl. 9 -  EFN203, FRA103, ÍSL102, ÍSL103 og RAF253
Kl. 13 - AVV104, KÆL102, SAG103, SAG203 og VST104

Nemendur sem ekki komast í próf vegna ófærðar láti vita á skrifstofu skólans í síma 450-4400.

Prófstjóri.

9 des 2014

Skólahald fellur niður frá kl. 14

Skólahald fellur niður frá klukkan 14 í dag, þriðjudaginn 9. desember vegna mjög slæmrar veðurspár. Á morgun hefjast prófadagar og eru nemendur beðnir um að fylgjast með tilkynningum á heimasíðunni og á facebook síðu skólans.
6 des 2014

Skipulag námsmatsdaga í desember

Prófatafla fyrir námsmatsdaga í desember hefur verið samþykkt af skólaráði er birt í INNU. Nemendur geta þar með séð í INNU hvenær þeir eiga að mæta í þau próf sem þeir eru skráðir í. Athugið að prófin hefjast alltaf kl. 9 og standa í eina og hálfa klukkustund. Upplýsingar um staðsetningu próf í stofum verða hengdar upp á auglýsingatöflum í bóknámshúsi fyrir hvern prófadag.
2 des 2014

Vísindadagar 4. og 5. desember

Vísindadagar verða haldnir í MÍ dagana 4. og 5. desember. Þessa daga verður hefðbundin kennsla brotin upp og nemendur sýna afrakstur ýmissa verkefna sem unnin hafa verið á önninni. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og stendur frá kl. 8-15 báða dagana. Meðal þess sem verður í boði er:
  • Tímaflakk í gegnum hártískuna
  • Rafmagnsbíllinn Læðan
  • Sálfræðitilraunir
  • Kynningar á eðlisfræðitilraunum
  • Opið hús í verkmenntahúsi
  • Áhugaverðir fyrirlestrar
  • ....og margt fleira
Allir eru velkomnir á Vísindadaga!

Hér má sjá ítarlega dagskrá beggja daga.
25 nóv 2014

Kennslukönnun á haustönn

Kennslukönnun fyrir eftirtaldar námsgreinar var opnuð á Moodle þann 25. nóvember kl. 8. Nemendur eru vinsamlegast beðnir að svara könnuninni í þeim áföngum sem þau eru skráð og meta áfangana og kennsluna. 
  • Íslenska (ÍSA 102, 212, 403, ÍSL 102, 103, 212, 202, 503, 613)
  • Stærðfræði (STÆ 192, 102, 122, 103, 262, 303, 313, 503, 523)
  • Raungreinar (L 103, 203, EFN 203, LÍF 203, LOL 103, NÁT 103, 123)
  • Tölvufræði (TÖL 103)
  • Upplýsingatækni (UTN 103)
Með ósk um góða samvinnu.
Sjálfsmatsnefnd